Hoppa yfir valmynd
30. júní 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Styrkir til verkefna til stuðnings við þolendur og gerendur ofbeldis

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem miða að því að tryggja þolendum og gerendum ofbeldis aðgengi að stuðningi og ráðgjöf. Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að bregðast við afleiðingum Covid-19 faraldursins.  

Styrkir eru veittir til verkefna sem miða að því að tryggja þolendum og gerendum ofbeldis um land allt aðgengi að stuðningi og ráðgjöf.

Styrkir geta að hámarki numið 75% af áætluðum heildarkostnaði verkefnis. Til úthlutunar eru 60 milljónir króna. 

Sækja skal um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Umsóknarfrestur er til klukkan 13.00 mánudaginn 21. ágúst 2023. 

Hér má finna reglur með nánari upplýsingum um úthlutun styrkjanna. 

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum