Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2023 Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Viljayfirlýsing undirrituð um nýja vatnslögn til Eyja

Viljayfirlýsing um vatnslögn til Vestmannaeyja var undirrituð á Skansinum að loknum bæjarstjórnarfundi. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra skrifuðu undir en Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fylgdist með á fjarfundi og skrifaði undir rafrænt. - mynd

Ríkið og Vestmannaeyjabær hafa undirritað viljayfirlýsingu um að ríkissjóður taki þátt í kostnaði við lagningu nýrrar vatnsleiðslu til Eyja. Það er gert vegna þeirrar sérstöðu Vestmanneyja að vera háðar flutningi vatns frá fastalandinu og með vísan til almannavarnasjónarmiða. Það voru Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem undirrituðu viljayfirlýsinguna í dag á Skansinum við upphaf goslokahátíðar í Eyjum.

Ein vatnsleiðsla flytur nú vatn til Vestmannaeyja og komið er að viðhaldið á henni. Eldri leiðslur eru ónýtar og nauðsynlegt er talið að leggja nýja leiðslu til að tryggja öryggi. Vestmannaeyjabær og almannavarnasvið ríkislögreglustjóra hafa vakið athygli á að almannavarnaástand geti skapast fljótt ef vatnsleiðsla til Eyja rofnar. 

Þrátt fyrir ótvíræða skyldu sveitarfélaga, skv. lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, til að fullnægja vatnsþörf hefur ríkið ákveðið taka þátt í þessum kostnaði í ljósi sérstöðu Vestmannaeyja. 

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
„Það er ánægjulegt að ríkið og bæjaryfirvöld í Vestmanneyjum hafi náð saman um fyrirkomulag um stuðning ríkisins við lagningu vatnsleiðslu, sem er til þess fallið að koma til móts við landfræðilega sérstöðu Eyja. Það fer einnig vel á því að undirrita viljayfirlýsingu nú þegar við minnumst þess að 50 ár eru liðin frá goslokum í Vestmannaeyjum.“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
„Það er mikilvægt öryggismál fyrir Vestmannaeyinga að búa að öruggum tengingum við fastalandið. Samfélagið í Eyjum er öflugt og sérstaklega verðmætt fyrir þjóðina alla, en með þessum sérstaka stuðningi tryggjum við að það geti haldið áfram að vaxa og dafna. Það er sérstaklega viðeigandi að undirrita viljayfirlýsingu þar um á þessum tímamótum í sögu bæjarins.“

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
„Það gleður mig að séð er fyrir endann á því að þetta mikla hagsmunamál okkar Eyjamanna komist í heila höfn. Það er viðeigandi að þessi undirritun fari fram á þessum degi á þessum stað.”

Nánar um framlag ríkisins

Viljayfirlýsingin er gerð með fyrirvara um fjárveitingu á grundvelli fjárheimildar Alþingi. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður greiði allt að 80% kostnaðar sem er umfram 1.200 m.kr. en ekki hærri fjárhæð en 800 m.kr. Framlagið verður greitt til sveitarfélagsins við lok framkvæmda þegar vatnsleiðslan hefur verið tekin í notkun og endanlegur kostnaður liggur fyrir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum