Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2023 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um embætti héraðsdómara

Hinn 12. maí síðastliðinn auglýsti dómsmálaráðuneytið laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Annars vegar skipun í embætti dómara sem mun hafa fyrstu starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. september 2023. Hins vegar setningu í embætti dómara með fyrstu starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur meðan á leyfi skipaðs héraðsdómara stendur, frá og með 1. september 2023.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni til dómsmálaráðherra. Það er niðurstaða dómnefndar að Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður sé hæfust umsækjenda til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Að því frátöldu er það niðurstaða dómnefndar að Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari sé hæfastur umsækjenda til að vera settur í embætti héraðsdómara.

Dómnefndina skipuðu: Eiríkur Tómasson, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Benediktsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

Umsögn dómnefndar. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum