Hoppa yfir valmynd
8. ágúst 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Embætti forstjóra Geislavarna ríkisins laust til umsóknar

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Geislavarna ríkisins. Auglýsingin hefur einnig verið birt á Starfatorg.is. Geislavarnir ríkisins starfa samkvæmt lögum um geislavarnir nt. 44/2002. Stofnunin hefur það hlutverk að annast öryggisráðstafanir gegn geislun frá geislavirkum efnum og geislatækjum. Geislavarnir eru með vottað gæðakerfi samkvæmt ISO-9001:2015.

Helstu verkefni og ábyrgð

Forstjóri hefur forgöngu um þróun og eflingu geislavarna á landsvísu í samræmi við stefnumörkun ráðherra. Forstjóri ber ábyrgð á að Geislavarnir ríkisins starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015  og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. 

Hæfniskröfur

  • Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólapróf  á starfssviði stofnunarinnar.
  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði. 
  • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.
  • Víðtæk þekking og reynsla á sviði geislavarna. 
  • Reynsla af stefnumótun og innleiðingu nýunga er skilyrði sem og skýr framtíðarsýn.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. 
  • Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera, hafi mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti,  góða kunnátta í ensku og kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Utan félaga forstöðumenn hafa gert.

Hæfni umsækjenda verður metin af hæfisnefnd, sem heilbrigðisráðherra skipar.

Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. desember 2023.

Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um núverandi starfsheiti ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun, fyrri störf, afrit af prófskírteinum auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 22.08.2023

Nánari upplýsingar veitir Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri - [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum