Hoppa yfir valmynd
1. september 2023 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur - myndiStock/StockSeller ukr

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1.september. Matvælaráðuneytinu bárust 28 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 24.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURРsem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 379 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 350 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 24.

  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 28.

  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði/hámarksverði var 19.

  • Fjöldi sölutilboða yfir jafnvægisverði var 21.

  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.402.367 lítrar.

  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 846.000 lítrar.

  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 225.000 lítrar að andvirði 78.750.000,- kr.

  • Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 3 talsins og selja 16% af framboðnu magni.

  • Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 9 talsins og fá 92% af eftirspurðu magni í sinn hlut.

  • Eitt tilboð barst sem uppfyllti skilyrði um forgangsúthlutun til nýliða.

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í AFURÐ.

 



Úr reglugerð um stuðning í nautgriparækt nr. 348/2022:

Jafnvægisverð: Það verð sem myndast þegar framboðið magn er jafnt og eftirspurt magn eða lægsta verð sem jafnvægismagn getur verið selt og keypt á.

Greiðslumarki sem boðið er til sölu á hærra verði en jafnvægisverði skal vísað frá markaði og á sama hátt kauptilboðum sem eru lægri en jafnvægisverð.

Öll viðskipti sem fara fram á viðkomandi markaðsdegi skulu fara fram á því jafnvægisverði sem markaðurinn gefur í það sinn eða hámarksverði.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum