Hoppa yfir valmynd
4. september 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ríkisreikningur 2022: Bætt afkoma og frumjöfnuður jákvæður

Heildarafkoma A1-hluta ríkisins á árinu 2022 reyndist tæplega 100 ma.kr. betri en gert var ráð fyrir í fjárlögum ársins 2022 og um 50 ma.kr. betri en útlit var fyrir samkvæmt áætlunum síðla árs 2022. Þannig var heildarafkoman neikvæð um tæpa 89 ma.kr., í stað þeirra 186 ma.kr. sem áætlaðir voru í fjárlögum. Þá er frumjöfnuður orðinn jákvæður um 6,7 milljarða króna en var áætlaður neikvæður um 131 milljarð króna samkvæmt samþykktum fjárlögum – og er þannig tæplega 138 milljörðum betri. Frumjöfnuður er afkoma ríkissjóðs fyrir vaxtatekjur- og gjöld.

Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2022 hefur nú verið birt og ríkisreikningur sendur Alþingi.
Efnahagsbatinn eftir heimsfaraldur kórónuveirunnar var óvíða sterkari en hérlendis árið 2022. Hagvöxtur reyndist kröftugur og hratt dró úr atvinnuleysi. Samhliða batanum óx verðbólga hér á landi líkt og víðast hvar annars staðar. Niðurstöður ríkisreiknings bera efnahagsbatanum skýr merki.

Framvinda ríkisfjármálanna jákvæð

„Afkoman er langtum betri en nokkur þorði að vona fyrir aðeins örfáum misserum síðan. Það dregur jafnt og þétt úr hallarekstri, auk þess sem skuldahlutföll ríkissjóðs hafa þróast með mjög jákvæðum hætti. Við erum á réttri leið,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra um niðurstöður ríkisreiknings.

„Tekjur ríkissjóðs hafa tekið hratt við sér á grunni sterks efnahagsbata og samhliða hefur verið gætt að því að sýna aðhald á útgjaldahliðinni. Þessi varfærna stefnumótun dregur úr eftirspurnarþrýstingi og stuðlar að auknu jafnvægi í efnahagsmálum,“ segir fjármála- og efnahagsráðherra.

Niðurstaðan veiti færi til sóknar og áframhaldandi bata á afkomu ríkissjóðs samhliða því sem áfram er unnið gegn ofþenslu hagkerfisins. Lækkun skuldahlutfalla ríkissjóðs feli í sér að skilyrði skapist til að lækka vaxtakostnað að nýju og tryggi að ríkissjóður sé í færum til að bregðast við efnahagsáföllum án þess að trausti og sjálfbærni sé ógnað.

Traust fótfesta og lægri skuldir

Ríkisstjórnin setti sér þau meginmarkmið í upphafi kjörtímabilsins í lok árs 2021 að styðja við hagkerfið þar til efnahagslífið næði traustri fótfestu að nýju. Í framhaldinu yrði áherslan lögð á að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs og var þannig einnig sett markmið um að bæta afkomu ríkissjóðs jafnt og þétt þannig að stöðva mætti hækkun á skuldum hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu eigi síðar en í árslok 2026. Samhliða yrði tryggt að tölulegar fjármálareglur laga um opinber fjármál gætu tekið gildi það ár eftir að hafa verið tímabundið vikið til hliðar í miðjum kórónuveirufaraldrinum.

„Hraður efnahagsbati staðfestir réttmæti þeirra ákvarðana sem teknar voru í upphafi faraldursins um að ríkissjóður tæki stöðu með heimilum og fyrirtækjum á meðan hann geisaði og skapaði þeim um leið skilyrði til að veita kröftuga viðspyrnu þegar faraldrinum sleppti,“ segir fjármála- og efnahagsráðherra.

„Þessi niðurstaða styður þau áform sem ríkisstjórnin kynnti sl. vor um að gildistöku fjármálareglnanna verði flýtt um eitt ár og þær taki gildi á árinu 2025.“

Miklar breytingar vegna innleiðingar á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum gera samanburð á ríkireikningum milli ára erfiðan. Að þessu sinni er reikningurinn birtur sem samstæða A- og B-hluta ríkisins sem er í samræmi við innleiðingaráætlun á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Afkoma ársins fyrir A- og B- hluta er neikvæð um 175 ma.kr. Afkoma ríkissjóðs fyrir A-1 hluta er sýnd í séryfirliti 1 og er samanburðarhæf við fyrra ár.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum