Hoppa yfir valmynd
6. september 2023 Forsætisráðuneytið

Ársskýrsla kærunefndar jafnréttismála 2022 komin út

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristín Benediktsdóttir, formaður kærunefndar jafnréttismála. - mynd

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristín Benediktsdóttir, formaður kærunefndar jafnréttismála, funduðu í gær þar sem formaður kærunefndar kynnti forsætisráðherra ársskýrslu nefndarinnar fyrir árið 2022.

Skýrslunni er skilað til ráðherra í samræmi við lög nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, en í henni er farið yfir starfsemi nefndarinnar, málafjölda og niðurstöður, málsmeðferðartíma og aðrar tölfræðiupplýsingar vegna ársins 2022.

Skýrslan er gefin út með rafrænum hætti og má lesa hér

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum