Hoppa yfir valmynd
7. september 2023 Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra heimsækir stofnanir á Vesturlandi

Gunnar Örn Jónsson lögreglustjóri, Hilmar Þór Hilmarsson lögreglufulltrúi og Kristján Ingi Hjörvarsson, settur aðstoðaryfirlögregluþjónn ásamt dómsmálaráðherra og aðstoðarmanni. - mynd

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra heimsótti nýlega stofnanir dómsmálaráðuneytisins á Vesturlandi, nánar til tekið lögreglustjóra, sýslumann og héraðsdóm á Vesturlandi.

Lögreglustöðin í Borgarnesi var fyrst sótt heim og þar tók á móti ráðherra Gunnar Örn Jónsson lögreglustjóri ásamt Hilmari Þór Hilmarssyni lögreglufulltrúa og Kristjáni Inga Hjörvarssyni settum aðstoðaryfirlögregluþjóni.

Íbúar lögregluumdæmisins á Vesturlandi eru rúmlega 18 þúsund og ferðamenn á dag um 20 þúsund. Umdæmið er um 9.520 ferkílómetrar og vegakerfið telur 2.826 km. Hjá embættinu starfa um 40 lögreglumenn, að meðtöldum afleysingamönnum og nemum. Starfsstöðvar embættisins eru á Akranesi, Borgarnesi, Stykkishólmi, Ólafsvík og Búðardal.

Embættið sinnir sérstöku umferðareftirliti og úrvinnslu úr hraðamyndavélum á landsvísu. Á vormánuðum fékk embættið aukningu fjárveitinga sem nam fjórum stöðugildum, þ.e. tvö stöðugildi lögreglumanna og tvö stöðugildi sérfræðinga hjá embættinu, vegna aukins umfangs tengt afgreiðslu umferðarmála og til þess að efla embættið á sviði almannavarna og samfélagslöggæslu.

Í máli lögreglustjóra kom fram að lögreglan á Vesturlandi standi mjög framarlega í grænum skrefum og hafi dregið verulega úr kolefnislosun með margvíslegum aðgerðum. Mikil þróunarvinna liggur að baki því að taka í notkun rafmagnsbíla sem lögreglubifreiðar og kvaðst lögreglan á Vesturlandi vera mjög ánægð með reynsluna af þessari breytingu.

Ráðherra heimsótti einnig héraðsdóm Vesturlands þar sem Lárentsínus Kristjánsson dómstjóri og Ragnheiður Guðmundsdóttir dómritari tóku á móti henni og kynntu sína starfsemi.

Starfsstöðvar sýslumannsins voru heimsóttar og tók staðgengill sýslumanns Daði Jóhannesson á móti ráðherra í Borgarnesi og sýslumaðurinn Ólafur Kr. Ólafsson í Stykkishólmi. Auk hefðbundinna verkefna sýslumanna fer embætti sýslumanns á Vesturlandi með allsherjarskrá um kaupmála og umsókn gjafsóknarmála. Aðalskrifstofa sýslumanns á Vesturlandi er í Stykkishólmi en starfsstöðvar eru reknar í Borgarnesi, á  Akranesi, Snæfellsbæ og Búðardal.   

Dómsmálaráðherra staldraði við á hverjum stað og kynnti sér starfsaðstöðu og helstu verkefni hvers embættis. Góðar og gagnlegar umræður áttu sér síðan stað um þær áskoranir og þau tækifæri sem fram undan eru í starfi lögreglu, dómstóla og sýslumanna.

Dómsmálaráðherra hitti Árna Sigmundsson varðstjóra og f.v. yfirlögregluþjón hjá Lögregluskóla ríkisins sem sagðist að líkindum vera einn elsti starfandi lögreglumaður landsins, ef ekki sá elsti. Nú væru aðeins örfáir dagar þangað til hann mundi hætta sökum aldurs.

Dómsmálaráðherra hitti Árna Sigmundsson varðstjóra og f.v. yfirlögregluþjón hjá Lögregluskóla ríkisins sem sagðist að líkindum vera einn elsti starfandi lögreglumaður landsins, ef ekki sá elsti. Nú væru aðeins örfáir dagar þangað til hann mundi hætta sökum aldurs. 

Dómsmálaráðherra og aðstoðarmaður með Lárentsínusi Kristjánssyni dómstjóra og Ragnheiði Guðmundsdóttur dómritara

Dómsmálaráðherra og aðstoðarmaður með Lárentsínusi Kristjánssyni dómstjóra og Ragnheiði Guðmundsdóttur dómritara í hérðaðsdómi Vesturlands

Starfsfólk sýslumanns á Vesturlandi í starfsstöð í Borgarnesi

Starfsfólk sýslumanns á Vesturlandi í starfsstöð í Borgarnesi

Starfsfólk sýslumannsins á Vesturlandi í höfuðstöðvum sýslumanns í Stykkishólmi.

Starfsfólk sýslumannsins á Vesturlandi í höfuðstöðvum sýslumanns í Stykkishólmi. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum