Hoppa yfir valmynd
7. september 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Starfatorg flyst á Ísland.is


Vefurinn starfatorg.is hefur flust af vef Stjórnarráðsins yfir á Ísland.is. Á vefnum eru auglýst laus störf hjá stofnunum ríkisins og ráðuneytum. Starfatorg.is hefur verið starfrækt í rúm 20 ár, eða frá árinu 2002, og hefur vefurinn alltaf verið mikið sóttur og birtar auglýsingar verið um 2.000 á ári, flestar á sviði heilbrigðis- og menntamála.

Að undanförnu hefur verið unnið að flutningi starfatorgsins á Ísland.is með það að markmiði að stíga enn frekari skref í að bæta upplýsingagjöf og stafræna þjónustu hins opinbera gagnvart almenningi. Vefurinn Ísland.is hefur að undanförnu þróast hratt sem opinber þjónustuvefur með ríka áherslu á góða framsetningu og aðgengi að þjónustu og upplýsingum. 

Fjársýslan hefur umsjón með starfatorgi. Stofnanir eða ráðuneyti geta sett auglýsingar á starfatorg í gegnum ráðningarkerfi Orra. Mannauðs- og launasvið Fjársýslunnar veitir aðstoð við birtingu starfsauglýsinga á starfatorgi og er hægt að hafa samband í gegnum þjónustugátt Fjársýslunnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum