Hoppa yfir valmynd
13. september 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Sigríður Dóra skipuð forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Sigríður Dóra Magnúsdóttir - mynd

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Sigríði Dóru Magnúsdóttur forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til næstu fimm ára, frá 15. september nk. Lögskipuð hæfnisnefnd sem metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana mat Sigríði Dóru mjög vel hæfa. Sex sóttu um embættið.

Sigríður Dóra er með læknapróf frá Háskóla Íslands, sérfræðipróf í heimilislækningum og diplóma í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu. Sigríður Dóra býr yfir mikilli þekkingu og reynslu af rekstri og stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Frá árinu 2019 hefur hún verið framkvæmdastjóri lækninga við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Áður hefur hún gegnt stöðu yfirlæknis á tveimur heilsugæslustöðvum, starfað sem umdæmislæknir sóttvarna og einnig sem rekstrarstjóri heilsugæslustöðvar.

Í áliti hæfnisnefndar kemur m.a. fram að auk langrar reynslu af stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu hafi Sigríður Dóra reynslu af stefnumótun og breytingastjórnun þar sem hún hafi náð miklum árangri. Það sé mat nefndarinnar að Sigríður Dóra sé góður leiðtogi og mjög vel hæf til að gegna embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum