Hoppa yfir valmynd
15. september 2023 Matvælaráðuneytið

Auknu fjármagni veitt til riðuvarna

Auknu fjármagni veitt til riðuvarna - myndiStock/george mkheidze

Nýbirt frumvarp til fjárlaga gerir ráð fyrir aukinni fjárveitingu upp á 110 milljónir króna til innleiðingar verndandi arfgerða gegn riðuveiki. Gert er ráð fyrir að aukningin mæti kostnaði við arfgerðagreiningu til að innleiða megi sem hraðast verndandi arfgerðir í íslenska sauðfjárstofninn. Þetta er í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 28. apríl 2023.

Í greinargerð Landbúnaðarháskóla Íslands kemur fram að hægt er að innleiða verndandi arfgerðir gagnvart riðusmiti á takmörkuðum svæðum. Þannig verði yfir 80% fjár á mestu áhættusvæðunum arfblendið eða arfhreint innan fimm ára og þar af leiðandi ólíklegt til að veikjast af riðu.

Matvælastofnun hefur haft samráð við viðeigandi aðila, m.a. fagráð í sauðfjárrækt og deild sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands til að hraða innleiðingu verndandi arfgerða. Sérstakur sérfræðingahópur um riðuveiki var einnig skipaður Matvælastofnun til ráðgjafar, en gott samstarf bænda og stjórnvalda er forsenda árangurs í þessum málaflokki. Yfirdýralæknir leiðir þessa vinnu af hálfu stjórnvalda, sem sá aðili sem ber ábyrgð á dýraheilbrigði.

„Það er til mikils að vinna að við getum hraðað innleiðingu arfgerða“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. „Til að það takist er nauðsynlegt að stjórnvöld vinni þétt með bændum sem hafa ræktunarstarf í sauðfjárrækt á hendi. Það höfum við gert og hyggjumst gera áfram“


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum