Hoppa yfir valmynd
18. september 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Fjármögnun háskóla tengd árangri - beint streymi frá kynningu

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, boðar til blaðamannafundar um árangurstengda fjármögnun háskóla. Fundurinn fer fram mánudaginn 18. september 2023 kl. 10:30 í Sykursalnum í Grósku. 

Á fundinum kynnir ráðherra umfangsmikla kerfisbreytingu á úthlutun fjármagns til háskóla sem er forsenda þess að íslenskir háskólar geti skarað fram úr. 

Árangurstengd fjármögnun háskóla leysir af  hólmi eldra reiknilíkan frá árinu 1999. Hún stóreykur gagnsæi í fjárveitingum til háskóla, ýtir undir fjölmarga hvata til frekari árangurs og mun hafa víðtæk áhrif á starfsemi allra háskóla hér á landi.

Fundurinn verður einnig í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum