Hoppa yfir valmynd
21. september 2023 Innviðaráðuneytið

Breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun kynntar í samráðsgátt stjórnvalda

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Hægt er að senda inn umsagnir eða ábendingar til og með 5. október nk.

Forsaga málsins er að innviðaráðuneytinu barst ábending í kjölfar þjónustukönnunar sem fram fór vorið 2022, um að flutningsjöfnunarstyrkir sem veittir eru á grundvelli laga um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011, væru ekki að ná markmiði sínu þar sem upphæðir væru svo lágar að það tæki því ekki fyrir minni framleiðendur að sækja um slíka styrki. Í umsögn Byggðastofnunar vegna ábendingarinnar kom fram að stofnunin hafi orðið var við sambærilega gagnrýni frá umsækjendum og lagði því til eftirfarandi breytingar á regluverkinu.

a. Hækkun á endurgreiðsluhlutfalli flutningskostnaðar sem hækka hlutfallslega eftir því sem flutningur er lengri. Slík breytingin myndi fela í sér auknar styrkveitingar fyrir minni framleiðendur.

b. Byggðastofnun hefur lækkað endurgreiðsluhlutfall umsókna til þess að fara ekki fram úr fjárheimildum á grundvelli 4. mgr. 6. gr. laga um svæðisbundna flutningsjöfnun og hafa umsækjendur ekki fengið nema 57-67% af samþykktri fjárhæð greidda sl. ár. Byggðastofnun leggur til að engin skerðing á endurgreiðsluhlutfalli verði á umsóknum upp að 1,25% af heildarfjárveitingu hvers árs.

Í frumvarpinu er lagt til að framangreindar tillögur verði lögfestar og taki til styrkveitinga sem veittar eru árið 2024 en tilgangur frumvarpsins er að tryggja að styrkveitingar séu í sem mestu samræmi við markmið laganna. Þá telur ráðuneytið ástæðu til að taka fram að gildistími laganna er til loka árs 2025 og gert er ráð fyrir að regluverkið verði tekið til frekari skoðunar fyrir þann tíma.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum