Hoppa yfir valmynd
25. september 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða laust til umsóknar

Hjúkrunarheimilið Eyri og Sjúkrahúsið á Ísafirði í bakgrunni - myndHVest. Ljósmyndari: Ásgeir Helgi Þrastarson

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum. Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vestfjarða sem nær yfir sveitarfélögin Bolungarvíkurkaupstað, Ísafjarðarbæ, Súðavíkurhrepp, Tálknafjarðarhrepp og Vesturbyggð. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Forstjóri ber ábyrgð á að Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist í starfi.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Reynsla af rekstri og stjórnun, þ.m.t. mannauðsmál, sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum með áherslu á árangursmiðað samstarf og upplýsingamiðlun er skilyrði.
  • Þekking og reynsla á sviði heilbrigðisþjónustu.
  • Reynsla af áætlunargerð og innleiðingu nýjunga er skilyrði.
  • Reynsla af stefnumótun og skýr framtíðarsýn er skilyrði.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Kostur er að umsækjandi hafi þekkingu á fjármálum hins opinbera, hafi mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti, góða kunnátta í ensku og kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Utan félaga forstöðumenn hafa gert.
Hæfni umsækjenda verður metin af nefnd, skv. 2. mgr. 9. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum.

Umsóknir með upplýsingum um núverandi starfsheiti umsækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun, fyrri störf, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. febrúar 2024.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.10.2023

Nánari upplýsingar veitir

Ásta Valdimarsdóttir, [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum