Hoppa yfir valmynd
29. september 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisþing 2023 helgað stafrænni þróun - haldið í Hörpu 14. nóvember

  - myndMynd: Heilbrigðisráðuneyti

Heilbrigðisþing árið 2023 verður að þessu sinni með norrænni skírskotun vegna formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni þetta árið. Fyrirlestrar á ráðstefnunni fara því fram á ensku en yfirskrift hennar er:

“Data and Digitalization: Crafting the Future of Sustainable Healthcare”

Þingið verður helgað stafrænni þróun innan heilbrigðiskerfisins með áherslu á gögn og gervigreind en Norðurlöndin í heild sinni stefna á að vera í fararbroddi þegar að þessu mikilvæga viðfangsefni kemur. Leitast verður við að skýra hvernig fjórða iðnbyltingin innan heilbrigðiskerfisins verður að byggja á góðum grunni gæða heilbrigðisgagna, skilvirks regluverks, trausts og þekkingu. Þannig megi efla heilbrigðiskerfi með tilliti til ákvarðanatöku, samvinnu, vísinda og greiningar í þágu almennings.

Velt verður upp spurningum um hvort slík nálgun sé nauðsynleg til að undirbúa heilbrigðiskerfið og samfélagið undir notkun gervigreindar í þágu fólksins í landinu og hvort stafræn þróun sé grunnur að sjálfbærni heilbrigðiskerfa.

Þingið verður haldið í Hörpu þann 14. nóvember og verða fyrirlesarar í fremstu röð, bæði innlendir og erlendir.

Þátttaka er öllum opinn og aðgangur er ókeypis.

Skráning og nánari upplýsingar á vef þingsins http://dataforhealthcare.is/

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum