Hoppa yfir valmynd
3. október 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Börnum óháð kyni býðst nú bólusetning gegn HPV veirunni

Börnum í 7. bekk er nú öllum boðin bólusetning gegn HPV veirunni, óháð kyni. Samhliða hefur verið tekið í notkun nýtt og breiðvirkara bóluefni en áður sem veitir víðtækari vörn gegn krabbameinum af völdum veirunnar. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra kynnti áform sín þessa efnis í lok síðasta árs. Hann fól sóttvarnalækni að hefja undirbúning og nú er þessi breyting orðin að veruleika.

Frá árinu 2011 hefur 12 ára stúlkum hér á landi boðist bólusetning við HPV veirunni með bóluefninu Cervarix. Finnland og Noregur hafa einnig notað það bóluefni en í Svíþjóð og Danmörku hefur verið notað bóluefnið Gardasil sem er breiðvirkara efni og hefur nú verið tekið í notkun hér á landi.

Mikilvæg vörn gegn krabbameinum af völdum HPV

Til eru fjölmargar gerðir HPV veira. Margar þeirra valda engum einkennum, aðrar valda kynfæravörtum og nokkrar tegundir geta valdið krabbameini. Leghálskrabbamein er algengasta krabbameinið af völdum HPV veirunnar en hún getur einnig valdið krabbameini í ytri kynfærum, endaþarmi, munni og hálsi óháð kyni.

Ávinningur einstaklinga og samfélags

Ávinningur af bólusetningu gegn HPV veirunni er mikill en fullur ávinningur bólusettra gegn krabbameinum kemur fram 15-20 árum eftir að reglubundin bólusetning hefst. Góð bólusetningarþátttaka skiptir miklu máli fyrir samfélagslegan ávinning. Frá því að bólusetning stúlkna hófst hér á landi árið 2011 hefur þátttakan verið um 90% sem lofar góðu um árangurinn til lengri tíma litið. Notkun breiðvirkara bóluefnis sem gefið er öllum börnum mun skila enn meiri ávinningi í baráttunni gegn krabbameini af völdum HPV veirunnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum