Hoppa yfir valmynd
5. október 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala

Skóflur mundaðar þar sem nýbyggingin við Grensásdeild Landspítala mun rísa - mynd

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri viðbyggingu Endurhæfingardeildar Landspítala við Grensás. Auk ráðherra tóku skóflustungu þau Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala, Svava Magnúsdóttir fulltrúi Hollvina Grensásdeildar, Arnar Helgi Lárusson formaður SEM samtakanna svo og starfsmenn Grensásdeildar þær Guðbjörg Efemía Magnúsdóttir og Eiríksína Kr. Hafsteinsdóttir.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra: ,,Ég er viss um að þessi langþráða viðbót við Grensásdeildina eigi eftir að reynast starfseminni vel. Í allri heildaruppbyggingu Landspítalans er nauðsynlegt að halda því til haga að það er verið að fjárfesta í steypu, veggjum og öðrum innviðum til þess eins að skapa góðar aðstæður fyrir fólkið innan veggjanna. Við erum því fyrst og fremst að fjárfesta í fólki og byggja undir áframhaldandi öfluga heilbrigðisþjónustu.“

Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf.: „Verkefnið við Grensás er eitt af fjölmörgum sem Nýr Landspítali ohf. sinnir og það fyrsta sem félagið sinnir utan framkvæmdagirðingarinnar á Hringbraut. Nú þegar hönnun er langt komin og jarðvinna er að hefjast þá tekst NLSH á við nýjar áskoranir að byggja í þegar byggðu hverfi. Umhverfis- og öryggismálin eru alltaf hjá félaginu í öndvegi og munu verða það í þessu verkefni líka. Markmiðið er að verklegar framkvæmdir séu unnar í sátt við allt og alla.“

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala: „Þörfin fyrir sérhæfða endurhæfingarþjónustu hefur aukist í takt við fjölgun íbúa. Það er öllum ljóst sem til þekkja að húsnæði Grensásdeildar, sem lítið hefur verið endurnýjað frá því deildin var opnuð fyrir 50 árum, mætir engan veginn kröfum samtímans. Því er sérlega ánægjulegt að loks hilli undir að reist verði viðbygging sem mun valda straumhvörfum því hún verður sérsniðin fyrir nýtingu á nýjustu þekkingu og tækni á sviði sérhæfðs þjálfunarbúnaðar og hjálpartækja í endurhæfingarmeðferð en mikil framþróun á því sviði hefur átt sér stað á undanförnum árum. Það kostar mikla fjármuni að koma upp sérhæfðum þjálfunarbúnaði. Við á Landspítala erum því afar þakklát fyrir söfnunarátak Hollvina Grensáss og vonum að landsmenn sýni okkur stuðning.“ 

Um Grensásdeild og fyrirhugaða nýbyggingu

Grensásdeild er endurhæfingardeild Landspítala, en þangað koma sjúklingar til endurhæfingar eftir að hafa lokið meðferð á öðrum deildum spítalans. Algengast er að sjúklingar komi í sérhæfða sjúkra- og iðjuþjálfun, talþjálfun eða viðtöl og meðferðir hjá fjölmörgum sérfræðingum endurhæfingardeildarinnar. Núverandi húsnæði Grensásdeildar er komið til ára sinna og styður ekki við nýjustu þekkingu og þróun hjálpartækja og búnaðar í endurhæfingu mænuskaðaðra og mikið slasaðra einstaklinga.

Nýbyggingin sem verður um 4.400 m2 að stærð verður sérsniðin fyrir þjálfunarstarfsemi Grensásdeildar og nýja legudeild, en einnig verður þar nýr matsalur og ýmis önnur samverurými ásamt tilheyrandi stoðrýmum. Áhersla verður á þarfir sjúklingsins til endurhæfingar og uppbyggingar, en einnig á velferð starfsfólks, aðgengi fyrir alla og góða hljóðvist, ljósvist og innivist.

  • Arkitektahönnun, Nordic Office Architecture
  • Verkfræðihönnun, EFLA verkfræðistofa.

Nýbyggingin við Grensásdeild verður 4.400 fermetrar

  • Fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala - mynd úr myndasafni númer 1
  • Fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala - mynd úr myndasafni númer 2
  • Fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala - mynd úr myndasafni númer 3
  • Fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala - mynd úr myndasafni númer 4
  • Fyrsta skóflustungan að viðbyggingu við Grensásdeild Landspítala - mynd úr myndasafni númer 5

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum