Hoppa yfir valmynd
6. október 2023 Innviðaráðuneytið

Opinn fundur um hágæða grænar samgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkur

Innviðaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Kadeco, Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum standa sameiginlega að opnum fundi um góðar og umhverfisvænar samgöngur milli alþjóðaflugvallarins í Keflavík og höfuðborgarsvæðisins. Ræða á sameiginlega framtíðarsýn, raunhæfni og mögulegar lausnir á þeim áskorunum sem blasa við. Erlendir gestafyrirlesarar gefa innsýn í svipuð verkefni sem borgir í Evrópu hafa ráðist í og einnig verður tekinn púls á þeim möguleikum sem bjóðast hjá aðilum sem vinna um allan heim að stórum innviðaverkefnum með áherslu á vistvænni samgöngur.

Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri samgönguáætlunar hjá innviðaráðuneytinu, verður með erindi og Árni Freyr Stefánsson, skrifstofustjóri samgangna hjá innviðaráðuneytinu, tekur þátt í pallborðsumræðum. 

Fundurinn verður haldinn í Salnum í Kópavogi fimmtudaginn 12. október, milli kl. 13 – 17.

Nánari upplýsingar og skráningu er að finna á dagskrársíðu viðburðarins: Opinn fundur um samgöngur til KEF.

Dagskrá:

  • 13:00-13:05 Velkomin | Fundarstjóri Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur  

  • 13:05-13:20 Hágæðasamgöngur fyrir heimsborg  | Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri  

  • 13:20-13:35 Í átt að öflugri og kolefnishlutlausum almenningssamgöngum til Keflavíkurflugvallar | Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, verkefnastjóri samgönguáætlunar hjá innviðaráðuneytinu  

  • 13:35-13:50 Þróunaráætlun Kadeco K64 – Keflavik Reykjavik Link KRL  | Samúel Torfi Pétursson, þróunarstjóri hjá Kadeco 

  • 13:50-14:05 Sagan og staðan - flugrúta, fluglest og fleiri hugmyndir | Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur 

  • 14:05-14:35 Pallborð: Hver eru næstu skref?  
    Þátttakendur í pallborði:  

- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri 

- Árni Freyr Stefánsson, innviðaráðuneytið 

- Samúel Torfi Pétursson, Kadeco 

- Bryndís Friðriksdóttir, Vegagerðin. 

Umræðustjóri: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur 

  • 14:35-14:50 Hlé  

Dagskrá eftir hlé mun fara fram á ensku  

  • 14:50-15:10 Val á samgöngulausnum - flugvallartengingar og reynslusögur | Thomas Potter, technical expert, Norconsult heldur erindi á ensku 

  • 15:10-15:25 Grænni og snjallari samgöngur um allan heim  | Carl Åge Björgan, framkvæmdastjóri Alstom í Noregi og Íslandi heldur erindi á ensku 

  • 15:25-15:45 Tengingin milli Helsinki og Vantaa flugvallarins | Henry Westlin, borgarverkfræðingur Vantaa heldur erindi á ensku  

  • 15:45-16:10 Pallborð: Hvernig gæti framtíðin litið út? 
    Þátttakendur í pallborði:

- Thomas Potter,

- Carl Åge Björgan og

- Henry Westlin. 

Stjórnandi: Lilja G. Karlsdóttir, samgöngusérfræðingur. 

Seinni pallborðsumræður fara fram á ensku. 

  • 16:10-16:15 Lokaorð  

  • 16:15-17:00 Tengslamyndun og léttar veitingar


    Efnisorð

    Hafa samband

    Ábending / fyrirspurn
    Ruslvörn
    Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum