Hoppa yfir valmynd
17. október 2023 Innviðaráðuneytið

Greinargerð um sóknaráætlanir landshluta fyrir árið 2022 gefin út

Snæfell - myndHugi Ólafsson

Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál hefur gefið út greinargerð um sóknaráætlanir landshluta fyrir árið 2022. Þar má sjá að heildarfjármunir sóknaráætlana fyrir landshlutana átta voru 1,025 milljarður króna og kom meginhluti þess fjár frá ríkinu. Fjármunir sóknaráætlana renna fyrst og fremst í tvo farvegi. Annars vegar sérstök áhersluverkefni og hins vegar til uppbyggingarsjóða sem eru samkeppnissjóðir. Unnið var að 84 áhersluverkefnum í landshlutunum átta á árinu 2022 og nam framlag til þeirra tæplega 366,4 milljónum króna. Alls hlutu 524 verkefni styrki úr uppbyggingarsjóðum, samtals að fjárhæð rúmum 441,9 milljónum króna.

Sóknaráætlanir landshluta eru þróunaráætlanir sem byggja á samstöðu heimamanna í hverjum landshluta um framtíðarsýn, markmið og val á leiðum til að áætlunin nái fram að ganga. Markmið sóknaráætlana er að ráðstafa fjármunum sem varið er til verkefna í einstökum landshlutum á sviði samfélags- og byggðamála, samkvæmt svæðisbundnum áherslum.

Frá árinu 2013 hefur ríkið gert samninga um sóknaráætlanir við landshlutasamtök sveitarfélaga í öllum átta landshlutunum. Markmið með samningunum er að stuðla að jákvæðri samfélags- og byggðaþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni hvers landshluta og þar með landsins alls. Jafnframt er það markmið að einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu þeirra opinberu fjármuna sem til þeirra er varið.

Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál er skipaður fulltrúum frá öllum ráðuneytum og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Byggða­stofnun og landshlutasamtök sveitarfélaga eiga áheyrnarfulltrúa. Innviðaráðherra skipaði nýjan stýrihóp í júní 2021 til þriggja ára. Hlutverk stýrihópsins er meðal annars að efla samhæfingu innan Stjórnarráðsins í málefnum sem snúa að byggðamálum og tryggja virkt samráð við sveitarstjórnarstigið í þessum málaflokki. Þá er það hlutverk stýrihópsins að styðja landshlutasamtök sveitarfélaga við gerð og framkvæmd sóknaráætlana landshluta.

Vinna við endurskoðun á samningum um sóknaráætlanir landshluta er að hefjast en núgildandi samningar gilda út árið 2024.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum