Hoppa yfir valmynd
18. október 2023 Innviðaráðuneytið

Ný reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga

Séð yfir Akureyri frá kirkjutröppunum. - myndHaraldur Jónasson / Hari

Ný reglugerð um íbúakosningar sveitarfélaga nr. 922/2023 hefur verið staðfest og birt í Stjórnartíðindum.

Reglugerðin fjallar um íbúakosningar á grundvelli 133. gr. sveitarstjórnarlaga sem ekki fara fram með rafrænum hætti. Reglugerðin hefur það markmið að einfalda og minnka umfang íbúakosninga sveitarfélaga og auka vald sveitarfélaga hvað kosningarétt varðar í ráðgefandi íbúakosningum. Reglugerðinni er jafnframt ætlað að auka lýðræðisþáttöku og sjálfbærni sveitarfélaga og þannig efla sveitarstjórnarstigið í heild.

Íbúakosningar sveitarfélaga eru af þrennum toga sem falla allar undir gildissvið reglugerðarinnar. Um er að ræða:

  • Kosningar í nefnd sem fer með málefni fyrir hluta sveitarfélags, sbr. 38. gr. sveitarstjórnarlaga.
  • Sameiningakosningar sveitarfélaga, sbr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga.
  • Íbúakosningar um einstök málefni, sbr. 107. og 108. gr. sveitarstjórnarlaga.

Leiðbeiningar um framkvæmd

Ráðuneytið hefur jafnframt birt leiðbeiningar um framkvæmd íbúakosninga á vef sínum.

Sérstök athygli er vakin á þeim breytingum sem hafa verið gerðar á framkvæmd íbúakosninga sem fram fara að frumkvæði sveitarstjórnar og ekki eru bindandi.

Sveitarstjórn getur nú ákveðið að halda íbúakosningu fyrir tiltekinn aldur íbúa, t.d. 16-20 ára eða 60 ára og eldri, fyrir erlenda ríkisborgara sem lögheimili eiga í sveitarfélaginu eða fyrir íbúa sem hafa lögheimili í tilteknum hluta sveitarfélagsins. Auk þess er gert ráð fyrir að framkvæmd og fyrirkomulag slíkra kosninga sé mun umfangsminna en um aðrar bindandi íbúakosningar sveitarfélaga. Markmið breytinganna er meðal annars að veita sveitarfélögum tækifæri til að efla lýðræðivitund og þekkingu ungs fólks og auka lýðræðisþáttöku erlendra ríkisborgara. Eru sveitarfélög sérstaklega hvött til að kynna sér nýtt fyrirkomulag slíkra kosninga.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum