Hoppa yfir valmynd
19. október 2023 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Lagningu upplýsingahraðbrauta í Árneshreppi að ljúka

Landslagið í Árneshreppi hefur gert aðstæður til verksins krefjandi. - mynd

Í tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025 kemur m.a. fram að meginmarkmið í fjarskiptum verði að tengja byggðir landsins og að innviðir og þjónusta mæti þörfum almennings og atvinnulífs m.a. með almennu aðgengi að ljósleiðara- og háhraðafarneti. Ísland verði gígabitaland.

Árneshreppur var síðasta sveitarfélagið sem hlaut styrk frá fjarskiptasjóði á grundvelli átaksverkefnisins Ísland ljóstengt. Uppbygging á samfelldu ljósleiðaraneti hefur staðið yfir í hreppnum síðastliðin þrjú sumur samhliða lagningu á raforku-jarðstrengjum í stað loftlína. Jarðvinnuverktakar eru þessa dagana að ljúka við að leggja síðustu metrana. Þessi mikla uppfærsla á fjarskiptainnviðum, sem sveitarfélagið og fasteignaeigendur greiða fyrir auk stuðnings frá fjarskiptasjóði, hefur þegar gjörbreytt skilyrðum til búsetu, atvinnu og náms í þessu fámenna samfélagi.

„Framtíðarsýn mín um að Ísland verði gígabitaland nær til alls landsins. Almennt aðgengi að áreiðanlegu ljósleiðara- og háhraðafarneti er ein forsenda þess að hugvitið verði grunnur að stærstu útflutningsgrein þjóðarinnar óháð því hvar á landinu fólk býr, starfar eða stundar nám. Til að svo verði þarf að setja aukinn kraft í lagningu ljósleiðaraneta eða „upplýsingahraðbrauta“ að heimilum, atvinnuhúsnæði og farnetssendum á þéttbýlisstöðum víða um land, nú þegar að allra síðustu dreifbýlissvæðin hafa verið tengd, “segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

  • Lagningu upplýsingahraðbrauta í Árneshreppi að ljúka - mynd úr myndasafni númer 1
  • Lagningu upplýsingahraðbrauta í Árneshreppi að ljúka - mynd úr myndasafni númer 2
  • Lagningu upplýsingahraðbrauta í Árneshreppi að ljúka - mynd úr myndasafni númer 3
  • Lagningu upplýsingahraðbrauta í Árneshreppi að ljúka - mynd úr myndasafni númer 4
  • Lagningu upplýsingahraðbrauta í Árneshreppi að ljúka - mynd úr myndasafni númer 5
  • Lagningu upplýsingahraðbrauta í Árneshreppi að ljúka - mynd úr myndasafni númer 6
  • Lagningu upplýsingahraðbrauta í Árneshreppi að ljúka - mynd úr myndasafni númer 7

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum