Hoppa yfir valmynd
24. október 2023 Dómsmálaráðuneytið

Átta sóttu um setningu í embætti héraðsdómara

Hinn 29. september 2023 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði lausa til umsóknar setningu í embætti með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Sett verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur lokið störfum. Umsækjendur um embættið eru eftirtaldir:

 

  • Finnur Vilhjálmsson settur héraðsdómari,
  • Hákon Þorsteinsson lögfræðingur,
  • Margrét Helga Kristínar Stefánsdóttir lögmaður,
  • Oddur Þorri Viðarsson lögfræðingur,
  • Sigurður Jónsson lögmaður,
  • Sindri M. Stephensen dósent,
  • Sólveig Ingadóttir aðstoðarmaður héraðsdómara,
  • Stefanía G. Sæmundsdóttir saksóknari.

 

Umsóknir hafa verið afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum