Hoppa yfir valmynd
24. október 2023 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra úthlutar tíu milljónum til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til sex verkefna á sviði jafnréttismála en heildarfjárhæð styrkjanna er tíu milljónir króna. Styrkirnir eru veittir á grundvelli reglna um úthlutun styrkja sem forsætisráðherra veitir til verkefna og viðburða á sviði jafnréttismála.

Styrkirnir voru auglýstir 5. október sl. en alls bárust 13 umsóknir og var heildarfjárhæð sem sótt var um 34 milljónir króna. Starfshópur í forsætisráðuneytinu fór yfir umsóknir og gerði tillögu um úthlutun til forsætisráðherra.

Þau verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni eru:

  • Vottunarkerfi fyrir fagfólk sem sinnir kynfræðslu – 2 milljónir króna
    Verkefni á vegum Kynís, Kynfræðifélags Íslands, um gerð vottunarkerfis fyrir fagfólk sem sinnir kynfræðslu í skólum, til almennings og stofnana.

  • HeForShe herferð – 1,5 milljónir króna
    Ný HeForShe herferð á vegum UN Women þar sem markmiðið er að ná til og virkja karla á Íslandi í jafnréttisbaráttunni með jákvæðri karlmennsku.

  • Ofbeldismenn á Íslandi – 1,5 milljónir króna
    Átak á vegum Stígamóta á samfélagsmiðlum til vitundarvakningar í kjölfar ráðstefnunnar Ofbeldismenn á Íslandi sem fram fór 12. október sl.

  • Kynjuð menningarmiðlun: Lífsleiðir og verk listakvenna og kynsegin listafólks – 1,5 milljónir króna
    Verkefni á vegum Flóru menningarhúss á Akureyri sem snýr að rannsóknum, eftirvinnslu og framsetningu á verkum listakvenna og kynsegin listafólks af ólíkum kynslóðum sem tengjast húsinu Sigurhæðir.

  • Fræðsla um viðeigandi aðlögun á vinnustað – 1,5 milljónir króna
    Verkefni á vegum Þroskahjálpar um fræðslu til fyrirtækja um viðeigandi aðlögun á vinnustað til að gera þau betur í stakk búin að taka á móti fötluðum einstaklingum til starfa.

  • Endómetríósa: Ekki bara slæmir túrverkir – 2 milljónir króna
    Gerð heimildarmyndar og kynningarherferðar á vegum Samtaka um endómetríósu til að vekja athygli og auka vitund á sjúkdómnum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum