Hoppa yfir valmynd
26. október 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

Auglýst er eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki vegna verkefna á sviði heilbrigðismála. Í ár leggur heilbrigðisráðherra áherslu á að styrkja verkefni sem lúta að langvinnum sjúkdómum (e. Noncommunicable Diseases). Sérstaklega verður horft til þessara sjúkdómsflokka: 

  • Krabbameina
  • Hjarta- og æðasjúkdóma
  • Sjúkdóma í stoð- og taugakerfi
  • Öndunarfærasjúkdóma
  • Efnaskiptasjúkdóma

Úthlutun fer fram einu sinni á ári og eru veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. 

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum er að finna á eyðublaðavef Stjórnarráðsins: http://minarsidur.stjr.is

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti lýkur verður ekki tekin til umfjöllunar.

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 27. nóvember 2023.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum