Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ráðstefna um stuðning við börn innflytjenda

Norræna netið fyrir nýaðflutta nemendur og mennta- og barnamálaráðuneytið boða til ráðstefnunnar Unlocking Potential: Effective Strategies for Supporting Immigrant Children fyrir stefnumótandi aðila á Norðurlöndunum. Ráðstefnan er haldin fimmtudaginn 7. desember 2023 í Gamla Bíó í Reykjavík og í streymi og fer fram á ensku.

Ísland gegnir formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2023. Ráðstefnan er liður í hlutverki Íslands við að auka norrænt samstarf með það að markmiði að byggja upp samfélagslega sjálfbærni á Norðurlöndunum.

Tilgangur ráðstefnunnar er að styrkja faglegt tengslanet norrænna stefnumótenda og efla samstarf í stefnumótun fyrir nýflutt börn innflytjenda til Norðurlandanna, með þeirri sameiginlegu norrænu sýn að byggja stefnu sem gerir börnunum kleift að taka fullan þátt í samfélaginu með sömu framtíðarmöguleikum og jafnaldrar þeirra.

Á ráðstefnunni verða nýjar rannsóknir kynntar ásamt sögum af vettvangi um hvernig styrkja megi móttöku og inngildingu barnanna. Einnig verður rætt um hvernig styðja megi fagfólk og nemendur í tungumálanámi, fyrstu skrefum sínum í nýju samfélagi og virkri þátttöku.

Markmið þess að stefna saman norrænum stefnumótendum í Reykjavík er að miðla þeirri þekkingu sem þarf til að bæta árangur, bæði félagslega og við menntun nemenda með innflytjenda- og flóttamannabakgrunn til að bæta inngildingu og vellíðan þeirra í nýju samfélagi.

Þátttaka á ráðstefnunni er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig.

Þessi viðburður er ætlaður stefnumótandi aðilum hjá ríkinu og sveitarfélögum en verður jafnframt í opnu streymi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum