Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2023 Innviðaráðuneytið

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa haldinn 19. nóvember

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 19. nóvember. Í ár verður sérstök áhersla lögð á fyrstu viðbrögð á slysstað og neyðarhjálp.

Minningarathafnir verða haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni, þar á meðal við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi kl. 14. Þar verða flutt ávörp og einnig verður fórnarlamba umferðaslysa minnst með einnar mínútu þögn.

Einkennislag dagsins er lag KK (Kristjáns Kristjánssonar) When I think of Angels, í flutningi hans og Ellenar systur hans. Kristján samdi lagið til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðvum kl. 14:00 á minningardaginn.

Alþjóðlegur minningardagur

Tilgangur með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni og ekki síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun.

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. Það eru u.þ.b. 1,3 milljónir á einu ári.

Að minningardeginum standa Samgöngustofa, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan og Vegagerðin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum