Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2023 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á blómum

Með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1178/2023, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutningsmagn blóma sem sótt skal um í stykkjatölu fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2024.

Berist umsóknir um meira magn, en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við skrifstofu landbúnaðar í síma 545-9700 eða eða á [email protected]. Sjá tengla fyrir nánari upplýsingar um vefkerfið og leiðbeiningar.

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is; þriðjudaginn 14. nóvember 2023 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, þriðjudaginn 21. nóvember 2023.

Matvælaráðuneytinu,14. nóvember 2023.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum