Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ráðstefna: Vinnum gullið – streymi

Mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við ÍSÍ, UMFÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga, boðar til ráðstefnunnar Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi mánudaginn 20. nóvember kl. 9-16 í (uppfært) Silfurbergi í Hörpu og í streymi. Á ráðstefnunni verða kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi með bættri aðstöðu, stuðningi og réttindum fyrir afreksíþróttafólk.

Dagskrá hefst með ávarpi forseta Íslands, forsætisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Að lokinni umfjöllun um framtíðarsýn mun þjóðþekkt afreksíþróttafólk greina frá sinni afstöðu. Fjallað verður um hvernig skapa megi umgjörð fyrir unga íþróttaiðkendur til að vaxa og dafna, jafnt í þéttbýli og dreifbýli. Loks verður farið yfir hvernig hámarka megi árangur og m.a. horft út fyrir landsteinana í þeim tilgangi.

Ráðstefnugestum gefst kostur á að varpa spurningum sínum fram fyrir pallborðsumræður og taka þátt í hópvinnu þar sem farið verður yfir ýmis álitamál. Endurgjöf þátttakenda mun nýtast starfshópi mennta- og barnamálaráðherra um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks í stefnumótun á sviði afreksíþrótta. Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur öll áhugasöm um árangur og afreksstarf til að mæta.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum