Hoppa yfir valmynd
20. desember 2023 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum fyrir tímabilið janúar – júní 2024

Mánudaginn 4. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna fyrri hluta ársins 2024, sbr. reglugerð nr. 1178/2023.

Þrjú tilboð bárust um innflutning á blómstrandi plöntum með knúppum eða blómum þó ekki kaktusar, úr tollskrárnúmerum (0602.9081-9083 og 0602.9088) samtals 4.700 stk., á meðalverðinu 27 kr/stk.  Hæsta boð var 50 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 2.200 stk. á jafnvægisverðinu 50 kr./stk.

Tvö tilboð bárust um innflutning á pottaplöntum til og með 1 metri á hæð, þó ekki kaktusar og þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna í tollskrárnúmeri (0602.9093) samtals 2.300 stk. Úthlutað var til tveggja fyrirtækja, en til úthlutunar var 3.000 stk.

Sex tilboð bárust um innflutning á rósum úr tollskrárnúmeri (0603.1100), samtals 6.500 stk., á meðalverðinu 47 kr./stk. Hæsta boð var 75 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum, um innflutning á 2.000 stk. á jafnvægisverðinu 61 kr./stk.

Fimm tilboð bárust um innflutning á tryggðablómum úr tollskrárnúmeri (0603.1400), samtals 17.000 stk., á meðalverðinu 46 kr./stk.  Hæsta boð var 65 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboðum var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 9.000 stk. á jafnvægisverðinu 61 kr./stk.

Fimm tilboð bárust um innflutning á afskornum blómum og blómknöppum sem notað er í vendi…. úr tollskrárnúmerum (0603.1903, 0603.1906-1908, 0603.1911-1918 og 0603.1999), samtals 242.250 stk. á meðalverðinu 30 kr./stk.  Hæsta boð var 61 kr./stk. en lægsta boð var 1 kr./stk. Tilboði var tekið frá fimm fyrirtækjum um innflutning á 166.250 stk. á jafnvægisverðinu 7 kr./stk.

Matvælaráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:

Blómstrandi pottaplöntur janúar - júní 2024

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

440

Blómabúð Akureyrar ehf

1.760

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

 

Aðrar pottaplöntur janúar – júní 2024

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

300

Blómabúð Akureyrar ehf

2.000

Garðheimar–Gróðurvörur ehf

 

Rósir janúar – júní 2024

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

400

Krónan ehf

1.600

Samasem ehf

 

Tryggðablóm janúar – júní 2024

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

1.000

Blómabúð Akureyrar ehf

8.000

Samasem ehf

 

Afskorin blóm janúar – júní 2024

Magn (stk)

Tilboðsgjafi

5.000

Blómabúð Akureyrar ehf

20.000

Garðheimar-Gróðurvörur ehf

39.700

Grænn markaður ehf

300

Krónan ehf

101.250

Samasem ehf

Reykjavík, 14. desember 2023 

Matvælaráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum