Hoppa yfir valmynd
20. desember 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Ríflega 26.000 manns fengu eingreiðslu fyrir jólin

Ríflega 26.000 manns fengu í gær eingreiðslu fyrir jólin þegar Tryggingastofnun afgreiddi eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega. Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis síðastliðinn laugardag, 16. desember, og var kapp lagt á að greiðslan bærist svo fljótt sem auðið var.

Eingreiðsluna fengu þau sem eiga rétt á greiðslu örorku- eða endurhæfingarlífeyris á árinu 2023 og var hún 66.381 kr. Hjá þeim lífeyrisþegum sem fengu greitt hluta úr ári var eingreiðslan í hlutfalli við greiðsluréttindi viðkomandi á árinu. Eingreiðslan telst ekki til skattskyldra tekna lífeyrisþega og leiðir ekki til skerðingar annarra greiðslna.

Þá hefur Tryggingastofnun greitt desemberuppbót til þeirra sem fá greiddar maka- og umönnunargreiðslur, sem og til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum