Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2024 Innviðaráðuneytið

Breyting á reglugerð um húsnæðisbætur

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur gefið út reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1200/2016, um húsnæðisbætur.

Um er að ræða frítekjumörk þeirra einstaklinga sem þiggja húsnæðisbætur vegna leigu íbúðarhúsnæðis. Frítekjumörkin hækka um 5,6% en mörkin voru hækkuð afturvirkt um mitt ár 2023 svo samtals nemur hækkun milli ára 8,2%.

Frá og með 1. janúar 2024 eru uppreiknuð frítekjumörk í 14. gr. reglugerðarinnar eftirfarandi:

Fjöldi heimilismanna Frítekjumörk m.v. árstekjur
1 5.690.772 kr.
2 7.526.505 kr.
3 8.811.518 kr.
4 eða fleiri 9.545.812 kr.

 

Reglugerð þessi er sett á grundvelli 4. mgr. 17. gr. sbr. 4. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum