Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Fjölmennt á kynningu í London um beint flug til Akureyrar

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hélt erindi á kynningu á flugleið EasyJet milli London og Akureyrar - mynd

Ný flugleið EasyJet frá London til Akureyrar og tækifærin sem henni fylgja voru umræðuefni fundar Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra í London í síðustu viku með fulltrúum EasyJet, Markaðsstofu Norðurlands, Íslandsstofu og sendiherra Íslands í Bretlandi. Flug EasyJet til Akureyrar hófst síðastliðið haust og mun standa fram á veturinn en flogið er tvisvar í viku.

Samhliða fundinum fór fram fjölmennur kynningarviðburður í sendiráði Íslands fyrir breska ferðaheildsala og fjölmiðla um áfangastaðinn Norðurland þar sem þjónusta og afþreying á svæðinu var kynnt.

Bretlandsmarkaður er mikilvægur markaður fyrir íslenska ferðaþjónustu en á tímabilinu ágúst 2022 til júlí 2023 heimsóttu rúmlega 268.000 breskir ferðamenn Ísland, en meðaldvalarlengd þeirra var 5, 1 nótt.

Ráðherra hvatti meðal annars fulltrúa EasyJet til að halda áfram þróun sinni á flugi til landsbyggðarinnar, en bæði flugvellirnir á Akureyri og Egilsstöðum eru skilgreindir alþjóðaflugvellir. Þannig hefur EasyJet hefur nú þegar tilkynnt um áframhald á flugi flugleiðinni London - Akureyri fyrir veturinn 2025.

Fyrir helgi undirritaði menningar- og viðskiptaráðherra samning um áframhaldandi stuðning við uppbyggingu alþjóðaflugs á landsbyggðinni. Að auki ákvað ráðherra að veita Markaðsstofu Norðurlands og Austurbrú 20 m.kr. framlag hvorri til þess að kynna og undirbúa Norður- og Austurland undir komu væntanlegra ferðamanna með beinu millilandaflugi.

„Beint millilandaflug til Akureyrar breytir miklu fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi, sér í lagi utan háannar. Það skapar tækifæri til að nýta innviði í ferðaþjónustu lengur og betur, og er liður að því að efla ferðaþjónustuna sem heilsársatvinnugrein á svæðinu. Við munum halda áfram að styðja við uppbyggingu millilandaflugs til landsbyggðarinnar, en það er skilvirkasta leiðin til að dreifa ferðamönnum um landið,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Fyrrnefndir fundir voru hluti af dagskrá ráðherra í London og voru skipulagðir í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands, Íslandsstofu og sendiráð Íslands í London.

Sjá einnig: Kynnti sér starfsemi CCP í London

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum