Hoppa yfir valmynd
24. janúar 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Um 93% skráð kílómetrastöðu

Rétt tæplega 93% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu. Hefur kílómetrastaða ríflega 47 þúsund bíla verið skráð.

Um áramótin tók gildi kílómetragjald fyrir notkun slíkra bíla og höfðu eigendur og umráðaaðilar ákveðinn frest til að skrá kílómetrastöðuna. Samkvæmt hinum nýju lögum verður lagt 20 þúsund króna vanskráningargjald á þá sem ekki hafa skilað inn álestri þann 31. janúar.

Kílómetragjaldið byggist á fjölda ekinna kílómetra og því munu þau greiða sem nota vegakerfið. Gjaldið verður 6 kr/km fyrir rafmagns- og vetnisbíla en 2 kr/km fyrir tengiltvinnbíla. Frekari upplýsingar um framtíðarsýn og breytingar á gjaldtöku í vegasamgöngum má nálgast á vegirokkarallra.is.

Fyrsti gjalddagi vegna kílómetragjalds er 1. febrúar og eindagi 14 dögum síðar. Þau sem ekki skrá bíla sína fá reikning fyrir áætlaðri notkun sem miðast við meðalakstur fólksbíls og samsvarar rétt rúmlega sjö þúsund krónur á mánuði. Með skráningu á kílómetrastöðu á Ísland.is munu greiðslur endurspegla notkun bíls.

Áfram stutt við kaup á rafbílum

Stjórnvöld munu halda áfram að styðja við kaup á rafmagns- og vetnisbílum þó að form stuðningsins hafi breyst um áramótin. Veittur verður beinn stuðningur við kaup á slíkum bílum í stað ívilnunar í virðisaukaskatti. Orkusjóður mun annast afgreiðslu styrkjanna. Umsækjendur sækja um með stafrænum hætti á Mínum síðum á Ísland.is. Allar nánari upplýsingar um styrkafgreiðslu er að finna á vef Orkusjóðs og á Ísland.is. Því verður áfram verulegur ávinningur af orkuskiptum fyrir bíleigendur.

Nánar:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum