Hoppa yfir valmynd
2. febrúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Ráðstefna um stöðu bókarinnar á Íslandi

Menningar- og viðskiptaráðuneytið boðar til ráðstefnu um stöðu bókarinnar á Íslandi föstudaginn 9. febrúar kl. 15:00 í Veröld – Húsi Vigdísar. Á ráðstefnunni verður farið yfir þau áhrif sem setning laga um stuðning við útgáfu bóka á íslensku, nr. 130/2018, hefur haft á bókamarkaðinn. Lögin tóku gildi í ársbyrjun 2019 og nú er komin allnokkur reynsla af þeim.

Á ráðstefnunni mun Deloitte gera grein fyrir niðurstöðum úttektar á endurgreiðslukerfinu sem fyrirtækið vann fyrir ráðuneytið. Einnig verða innlegg um hvaða áhrif fyrirkomulagið hefur haft á bókamarkaðinn og um alþjóðlegar breytingar á bókamarkaðnum. Pallborð um stöðu bókarinnar og bókamarkaðarins verður í lok dagskrár.

Dagskrá ráðstefnunnar.

 

Ráðstefnan er öllum opin en mælst er til þess að þátttaka sé skráð á meðfylgjandi slóð.

Skráning á ráðstefnuna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum