Hoppa yfir valmynd
7. febrúar 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Dr. Bjarki Þór Grönfeldt ráðinn aðstoðarmaður Guðmundar Inga

Bjarki Þór Grönfeldt. - mynd

Dr. Bjarki Þór Grönfeldt hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Bjarki lauk doktorsprófi í stjórnmálasálfræði við Háskólann í Kent í Englandi, en hann er jafnframt með meistaragráðu í faginu frá þeim háskóla. BS-námi sínu í sálfræði lauk hann við Háskólann í Reykjavík. Bjarki er stúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar.

Meðfram doktorsnáminu í Kent kenndi Bjarki sálfræði og tölfræði á bæði grunn- og meistarastigi. Frá lokum doktorsprófs hefur Bjarki starfað við kennslu og rannsóknir við Háskólann á Bifröst en mun fara í leyfi á meðan hann gegnir starfi aðstoðarmanns.

Bjarki er fæddur árið 1994 og ólst upp á Brekku í Norðurárdal og hefur í gegnum tíðina búið í Borgarfirði, Reykjavík og Canterbury í Englandi. 

Bjarki hefur gengt ýmsum trúnaðarstörfum í félagsmálum frá unga aldri. Hann var meðal annars aðalritari Ungra vinstri grænna, ritstjóri Háskólablaðs HR og forseti Sambands íslenskra námsmanna erlendis. Í dag situr hann í stjórnum Menntaskóla Borgarfjarðar og Menningarsjóðs Borgarbyggðar, ásamt því að gegna formennsku í Atvinnuleysistryggingasjóði.  

Bjarki er í sambandi með Daníel Jakobssyni landslagsarkitekt.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum