Hoppa yfir valmynd
8. febrúar 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mælti fyrir nýju úrræði til að mæta vanda rekstraraðila í Grindavík

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um tímabundinn rekstrarstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík. „Markmiðið er að rekstraraðilar sem orðið hafa fyrir verulegu tekjufalli vegna jarðhræringa náttúruhamfara í Grindavíkurbæ geti viðhaldið nauðsynlegri lágmarksstarfsemi, varðveitt viðskiptasambönd og hafið starfsemi á ný með stuttum fyrirvara og tryggt viðbúnað,“ sagði ráðherra í framsöguræðu sinni.

Gert er ráð fyrir því að úrræðið standi öllum rekstraraðilum í sveitarfélaginu til boða, hvort sem þeir eru einstaklingar eða lögaðilar. Skilyrði er að viðkomandi hafi stundað atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, með starfsstöð í Grindavíkurbæ, þegar rýma þurfti bæinn, 10. nóvember 2023. Til að eiga rétt á úrræðinu þarf rekstraraðili að hafa orðið fyrir a.m.k. 40% tekjufalli vegna náttúruhamfaranna. Þá er einnig skilyrði að viðkomandi sé í skilum með skatta og gjöld sem komin voru á eindaga fyrir 10. nóvember sl., hann hafi skilað skattskýrslum og öðrum skattgögnum og bú hans hafi ekki verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Tekjufall ber að reikna út fyrir hvern mánuð og gert er ráð fyrir að unnt verði að fá rekstrarstuðning vegna tímabilsins nóvember 2023 til og með apríl 2024.

Fjárhæð styrks samkvæmt frumvarpinu er þannig reiknuð að hún er margfeldi stöðugilda í rekstrinum með 600 þúsund krónum og tekjufallshlutfalli fyrir hvern mánuð. Við útreikning á styrkfjárhæð er að hámarki gert ráð fyrir tíu stöðugildum. „Ég tek þó fram að fyrirtækjum með fleiri stöðugildi en tíu er að sjálfsögðu heimilt að sækja um,“ sagði fjármála- og efnahagsráðherra.

Rekstrarstuðningur, fyrir hvern mánuð, getur að hámarki orðið 6 milljónir króna ef stöðugildi eru tíu og tekjur hafa dregist saman um 100%. Styrkfjárhæð getur þó ekki orðið hærri en sem nemur rekstrarkostnaði viðkomandi fyrirtækis í umsóknarmánuði.

Í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir því að launakostnaður sé talinn með rekstrarkostnaði enda er hann bættur sérstaklega gegnum annað tímabundið úrræði til stuðnings Grindvíkingum.
Líkt og gildir vegna úrræðisins sem er í gildi vegna launagreiðslna til Grindvíkinga er í frumvarpinu lagt til að endurgreiða beri rekstrarstuðning ef rekstraraðili greiðir út arð innan árs frá lokum stuðningstímabilsins, sem er fyrir 1. maí 2025.

Gert er ráð fyrir að rekstraraðili sæki um rekstrarstuðninginn til Skattsins og að hægt verði að kæra ákvarðanir Skattsins til yfirskattanefndar.

Efri mörk á mati á kostnaði ríkissjóðs við stuðninginn eru 2,7 milljarðar króna.

„Óvissan um framvinduna og tjónið í Grindavík er enn mikil og því gildir það sama um þetta úrræði eins og önnur úrræði stjórnvalda að endurskoða þarf hvort og þá hvernig tekist verður á við stöðuna þegar úrræðið rennur út í apríl og staðan kann að vera allt önnur en í dag,“ sagði fjármála- og efnahagsráðherra í framsöguræðu sinni.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum