Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2024 Innviðaráðuneytið

Drög að borgarstefnu í samráðsgátt

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Drög að fyrstu borgarstefnu fyrir Ísland hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frestur til að skila inn umsögn er til og með 22. mars næstkomandi.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra hyggst leggja fram tillögu til þingsályktunar um borgarstefnu á Alþingi á komandi haustþingi. Ein af áherslum byggðaáætlunar er að styrkleikar einstakra svæða verði greindir, unnið með þá og gætt að samspili þéttbýlis og dreifbýlis í þeim tilgangi að byggja upp fjölbreytt sjálfbær byggðarlög. Þessi áhersla felur meðal annars í sér að móta stefnu þar sem hlutverk Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins annars vegar og Akureyrarsvæðisins hins vegar, í byggðaþróun í landinu, verði skilgreind. Aðgerð C.4 Borgarstefna byggist á þessari áherslu en skilgreint markmið hennar er að þessi tvö stærstu þéttbýlissvæði landsins verði efld og samkeppnishæfni þeirra og hlutverk í byggðaþróun landsins styrkt. Í lok árs 2022 var skipaður starfshópur um mótun borgarstefnu á grundvelli aðgerðarinnar og hefur hópurinn unnið drög að borgarstefnu.

Markmið borgarstefnu er að styrkja stöðu Íslands í harðnandi alþjóðlegri samkeppni um fólk og fyrirtæki og stuðla að samspili þéttbýlis og dreifbýlis til uppbyggingar sjálfbærra byggðarlaga. Í því felst annars vegar að styrkja höfuðborgarhlutverk Reykjavíkur, höfuðborgarsvæðið og áhrifasvæði þess. Hins vegar að festa Akureyri í sessi sem svæðisborg og skilgreina og efla hlutverk hennar og áhrifasvæði.

Drög að borgarstefnu taka til fimm lykilviðfangsefna sem stuðla að því að framtíðarsýn hennar verði að veruleika:

  • Loftslagsmál. Áhersla á aðlögun að loftslagsbreytingum og forystuhlutverk borgarsvæðanna í því samhengi.
  • Móttaka innflytjenda. Áhersla á inngildandi borgarsamfélög með auknu samstarfi og samþættingu í þjónustu. Fjölgun erlendra sérfræðinga og sérhæfðs starfsfólks.
  • Innviðir. Áhersla á skipulag og uppbyggingu innviða sem stuðla að sjálfbærum borgarsamfélögum sem eru eftirsótt til búsetu og atvinnu og skapi umgjörð fyrir efnahagslega drifkrafta og nýsköpun.
  • Samfélag. Áhersla á hlutverk borgarsvæðanna varðandi menntun, menningu og heilbrigðis- og félagsþjónustu.
  • Atvinnulíf, fjárfestingar og nýsköpun. Áhersla á alþjóðlega samkeppnishæft umhverfi fyrir atvinnulíf og öflugt nýsköpunarumhverfi sem laðar að þekkingu og fjárfestingar.

Í drögum að borgarstefnu er lagður grunnur að umræðu um núverandi stöðu, lykilviðfangsefni og framtíðarsýn fyrir borgarsvæðin. Mikilvægt er að fá fram skoðanir og álit almennings og annarra hagaðila og eru því öll hvött til að kynna sér drögin og senda umsögn sína inn í samráðsgáttina.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum