Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2024 Dómsmálaráðuneytið

Tveir metnir hæfastir til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara

Tveir metnir hæfastir til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara - myndiStock/greenleaf123

Hinn 15. desember 2023 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur.

Þrjár umsóknir bárust um embættið. Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur nú skilað umsögn sinni um umsækjendur. Það er niðurstaða nefndarinnar að Finnur Þór Vilhjálmsson og Sindri M. Stephensen séu hæfastir til að hljóta skipun í hið lausa embætti og verði ekki gert upp á milli þeirra tveggja.

Dómnefndina skipuðu: Ása Ólafsdóttir formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Kristín Benediktsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

Umsögn dómnefndar frá 5. febrúar 2024

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum