Hoppa yfir valmynd
20. febrúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum

Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Íslands og Finnlands. Sjóðurinn veitir árlega styrki til einstaklinga, samtaka, félaga og stofnana vegna verkefna sem geta orðið til að efla samskipti milli Íslands og Finnlands á sviði menningar, lista, atvinnulífs og þjóðlífs almennt.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna verkefna sem eru fyrirhuguð á síðari hluta ársins 2024 og fyrri hluta ársins 2025. Frestur til að leggja inn umsóknir um styrki úr sjóðnum vegna þessa tímabils rennur út 31. mars 2024.

Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku, norsku, finnsku eða ensku. Einungis er hægt að sækja um rafrænt á: www.hanaholmen.fi.

Fyrirspurnir vegna umsókna má senda á: [email protected] en frekari upplýsingar um Menningarsjóð Íslands og Finnlands má finna á vefnum www.hanaholmen.fi


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum