Hoppa yfir valmynd
12. mars 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir um styrk til sveitarfélaga vegna barna á flótta

Mennta- og barnamálaráðuneytið leggur fé til stuðnings sveitarfélögum þar sem börn á flótta eru búsett. Styrkurinn nær til allra barna á skólaskyldualdri sem fengið hafa alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum frá 1. janúar 2022. Markmiðið með fjárstuðningnum er að styðja við móttöku barna sem hafa neyðst til þess að flýja heimaland sitt vegna átaka.

Veittur er fjárstuðningur til verkefna sem snúa að

  • stuðningi innan skóla og frístundastarfs,
  • stuðningi við barnaverndarnefndir og önnur úrræði fyrir fjölskyldur á flótta.

Fjárstuðningurinn miðar við þann fjölda barna á skólaskyldualdri sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eða fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum í hverju sveitarfélagi. Hægt er að sækja um 300.000 kr. styrk vegna hvers barns.

Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl nk. Tekið skal fram að opnað verður fyrir umsóknir á ný í lok ágúst 2024 og þá geta sveitarfélög sótt um fyrir börn sem hafa flust til sveitarfélagsins eftir að fyrri umsókn var send til mennta- og barnamálaráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum