Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ráðstefna um gæði og jafnræði í kennsluháttum á Norðurlöndum á sviði stærðfræði og náttúruvísinda. Norræn greining á TIMSS gögnum.

Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að komið er út nýtt rit um stærðfræði- og náttúrufræðikennslu á Norðurlöndum. Nokkrir norrænir höfundar birta greiningar sínar á gögnum TIMSS rannsóknarinnar – en TIMSS er alþjóðleg rannsókn á frammistöðu nemenda í fjórða og áttunda bekk grunnskóla í þessum námsgreinum. Leitast er við að svara því hvaða kennsluhættir skila árangri og stuðla að jöfnuði. Byggt er á gögnum úr TIMSS fyrir árin 2011, 2015 og 2019. Ísland tók þátt í TIMSS árið 1995.

TIMSS (Trends in International Mathematics and Science Study) rannsóknin hefur verið lögð fyrir reglulega í um þrjá áratugi af IEA (International Association for the Evaluation of Educational Achievements). Ritið sem nú kemur út birtist í ritröðinni IEA Research for Education. Ráðstefnan er haldin með stuðningi norrænu ráðherranefndarinnar að frumkvæði Nordisk Evalueringsnetværk sem um árabil hefur beitt sér fyrir því að unnið sé sérstaklega úr norrænum rannsóknagögnum á sviði menntamála undir heitinu Northern Lights.

Ráðstefnan fer fram á Reykjavík Hótel Natura þann 23. apríl en einnig er hægt að fylgjast með ráðstefnunni og umræðum í streymi. Vinsamlega skráðu þig til þátttöku hér neðst á síðunni og tilgreindu hvort þú hyggst mæta á staðinn eða fylgjast með í streymi. Þátttakendur sem koma á staðinn eiga kost á að fá eintak af ritinu.

Smelltu hér til að skrá þig og fylgjast með í streymi.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum