Hoppa yfir valmynd
10. maí 2024 Innviðaráðuneytið

Rampur eitt þúsund og eitt hundrað

Eggert N. Bjarnason íbúi í Vogum klippti á borðann þegar rampur nr. 1.100 var vígður. - mynd
Það var líf og fjör við félags- og íþróttamiðstöðina í Vogum í dag þegar rampur númer eittþúsund og eitthundrað  í verkefninu Römpum upp Ísland var vígður. Eggert N. Bjarnason íbúi í Vogum klippti á borðann í þetta sinn en Þorvaldur Örn Árnason mætti og tók lagið.

Þessi atburður markar tímamót í átakinu „Römpum upp Ísland”, sem stefnir að því að byggja 1.500 rampa í þágu hreyfihamlaða fyrir 11. mars 2025.  Átakið Römpum upp Ísland hefur nú reist 1.100 rampa og var sá fyrsti tekinn í notkun í maí 2021. Upphaflega var stefnt að því að reisa þúsund rampa en sú ákvörðun var svo tekin að ganga einu skrefi lengra og reisa eitt þúsund og fimmhundruð rampa.

Íbúar Voga lýstu yfir mikilli ánægju með átakið og metnaðinum á bak við það. Gunnar Axel Axelsson bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga segir að það hafi verið sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með þessum frábæra og metnaðarfulla verkefni sem hefur orðið til þess að aðgengismál hafa loksins komist rækilega á kortið í okkar samfélagi: „Við í Vogum viljum að sjálfsögðu tryggja jafnt aðgengi allra að okkar stofnunum og þeirri þjónustu sem íbúum stendur til boða og tökum fagnandi þeirri hvatningu og stuðningi sem felst í verkefninu Römpum upp Ísland. Vonandi munum við einhvern tíma upplifa þann dag þar sem aðgengi hreyfihamlaðra verður svo sjálfsagður og eðlilegur hlutur að það þurfi ekki átak til og ég held að Römpum upp Ísland hafi tekist að fleyta okkur miklu hraðar og nær því markmiði.“ 

Að verkefninu Römpum upp Ísland koma margir styrktaraðilar, þeirra á meðal: Ueno, innviðaráðuneytið, Össur, Deloitte, Brandenburg, Aton.JL, Lex lögmannsstofa, BM Vallá, Icelandair, Orkan, ÞG Verk, Sjálfsborg, ÖBÍ og Reykjavíkurborg. Að auki hefur fjölmargt stuðningsfólk lagt hönd á verkið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum