Hoppa yfir valmynd
22. maí 2024 Utanríkisráðuneytið

Utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Gran Canaria frestað til föstudags – boðuð atkvæðagreiðsla á Tenerife stendur óbreytt

Utanríkisráðuneytið neyðist til að fresta til föstudags boðaðri  utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi forsetakosninga sem átti að fara fram á Gran Canaria í dag. Það stafar af því að hluti kjörgagna sem send voru með forgangi á staðinn skiluðu sér ekki á áfangastað. 

Utanríkisráðuneytið leitar nú skýringa hjá flutningsaðilanum.

Athygli er vakin á því að kjörstjóri áritar sérstakt fylgibréf með hverju og einu atkvæði og heldur sérstaka skrá þar sem bókað er m.a. nafn, kennitala og lögheimili kjósenda og hvar og hvenær kosið var og hjá hvaða kjörstjóra. Með þessu fyrirkomulagi er komið í veg fyrir að misfarið sé með glötuð kjörgögn. 

Utankjörfundaratkvæðagreiðslan á Gran Canaria verður á föstudaginn 24. maí nk. og mun fara fram á veitingastaðnum Why Not Lago á Maspalomas milli klukkan 11 og 14.

Athygli er vakin á því að ofangreint hefur ekki áhrif á boðaða utankjörfundaratkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð er á Tenerife á morgun fimmtudag, föstudag og laugardag, á hótelinu H10 Conquistador á amerísku ströndinni milli klukkan 10:00 og 14:00.

Vegna örðugleika við utankjörfundaratkvæðagreiðslur á Kanaríeyjum mun utanríkisráðuneytið ábyrgjast að öll greidd utankjörfundaratkvæði þar verði flutt til viðeigandi kjörstjórna á Íslandi í tæka tíð, kjósendum að kostnaðarlausu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum