Vaxandi tengsl Íslands og Póllands
Tvíhliða samskipti og aukin samvinna Íslands og Póllands á sviði menningar- og viðskiptamála voru til umræðu á fundum Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra með Hönnu Wróblewsku ráðherra menningarmála og menningararfs í Póllandi og Krzysztof Paszyk ráðherra efnahagsþróunar og tækni. Fundirnir fór fram í Varsjá höfuðborg Póllands og var meðal annars tekin ákvörðun um að vinna að samkomulagi um aukin samskipti ríkjanna á sviði menningarmála sem formgert verður á komandi mánuðum. Ræddi ráðherra meðal annars um árangur Íslands í íslenskri máltækni en í Póllandi eru töluð um 30 tungumál sem þarlend stjórnvöld vilja vernda og styðja við.
Pólverjar fjölmennasti hópur innflytjenda á Íslandi
Pólverjar eru fjölmennasti hópur innflytjenda á Íslandi en þeim hefur fjölgað nokkuð á undanförnum áratugum. Í dag eru tæplega 30.000 einstaklingar, eða um um 8% af íbúafjölda Íslands, af pólskum uppruna eða með pólskan ríkisborgararétt hér á landi. Samhliða þessari íbúaþróun hafa samskipti og samvinna Íslands og Póllands aukist, þá sérstaklega á undanförnum 5 árum, einkum á sviði stjórnmála, mennta- og menningarmála. Má þar nefna að Íslenskt-pólskt verslunarráð hefur tekið til starfa, forseti Íslands leiddi sendinefnd í opinbera heimsókn til Póllands og íslenskt sendiráð var opnað í Varsjá.
Stóraukin samskipti í menningar-og menntamálum
Á undanförnum árum hefur samvinna í mennta- og menningarmálum eflst mikið. Árið 2020 undirrituðu þáverandi mennta- og menningarmálaráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Dariusz Piontkowski þáverandi menntamálaráðherra Póllands, samstarfsyfirlýsingu íslenskra og pólskra menntamálayfirvalda um að efla frekara samstarf landanna á sviði menntamála. Með yfirlýsingunni var lögð áhersla á að nemendur af pólskum uppruna hefðu aðgang að menntun á móðurmáli sínu og hvatt var til aukins samstarfs menntastofnana og samskipta ungmenna, kennara og skólastarfsfólks. Á grundvelli yfirlýsingarinnar hafa verið opnaðir pólskuskólar á Íslandi, þar sem m.a. mun fara fram móðurmálskennsla fyrir pólsk-íslenska nemendur um helgar. Þá hafa þrír pólskir háskólar í borgunum Kraká, Gdansk og Katowice hafið kennslu í íslenskri tungu og fræðum og Háskóli Íslands kennir nú pólsk fræði.
,,Við höfum séð góðan gang í samskiptum Íslands og Póllands, enda tengjast þjóðirnar sterkum vinaböndum. Það eru tækifæri til þess að dýpka þá samvinnu enn frekar og ákvarðanir í þá átt voru teknar í dag. Pólverjar skipta Ísland miklu máli og hafa lagt mikið af mörkum til þess að bæta íslenskt samfélag,‘‘ sagði Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.