Hoppa yfir valmynd
12. desember 2024 Dómsmálaráðuneytið

Auglýsing um breytingu á áfrýjunarfjárhæð

Samkvæmt 152. gr. laga um meðferð einkamála, 91/1991, er það skilyrði áfrýjunar, þegar mál varðar fjárkröfu, að fjárhæð kröfunnar nemi a.m.k. 1.000.000 króna. Áfrýjunarfjárhæðinni skal breyta um hver áramót miðað við vísitölu neysluverðs frá 1. janúar 2018 og auglýsa í Lögbirtingablaðinu.

Meðfylgjandi auglýsing dómsmálaráðherra um áfrýjunarfjárhæð fyrir árið 2025 birtist í Lögbirtingablaði þann 11. desember 2024:

Auglýsing um breytingu á áfrýjunarfjárhæð

Áfrýjunarfjárhæð samkvæmt 1. mgr. 152. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991, sbr. 17. gr. laga nr. laga nr. 49/2016, er kr. 1.420.488.

Áfrýjunarfjárhæð þessi tekur gildi 1. janúar 2025 og gildir fyrir árið 2025.

Dómsmálaráðuneytinu,
9. desember 2024.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta