Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Snældan heimaþjónusta opnar í Húnaþingi vestra

Sesselja Kristín Eggertsdóttir og Henrike Wappler hafa leitt verkefnið Gott að eldast í Húnaþingi vestra fyrir hönd HVE og sveitarfélagsins. Þær taka hér við gjöf og árnaðaróskum frá sveitarfélaginu við opnunina. - myndHunathing.is

Formleg opnun samþættrar heimaþjónustu Húnaþings vestra og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) fór fram á dögunum. Um er að ræða sameiginlega aðstöðu fyrir starfsfólk heimahjúkrunar, heimastuðnings og dagþjónustu en vinna við samþættinguna hefur farið fram undir merkjum Gott að eldast undanfarna mánuði. Húnaþing vestra og HVE undirrituðu samning um verkefnið í október

Þjónustan hefur fengið nafnið Snældan, heimaþjónusta. Í frétt á vefsíðu Húnaþings vestra er greint frá því að nafnið hafi tvíþætta skírskotun: Annars vegar í Snælduklett ofan Kirkjuhvamms sem margir íbúar sveitarfélagsins þekki en þangað liggur vinsæl gönguleið. Þá vísi nafnið einnig í snældu sem sé fornt verkfæri notað til spinna þráð eða tvinna saman band.

Fram kemur að í þjónustunni tvinnist einmitt saman skyldir þættir þjónustu og umönnunar sem nú séu veittir á einum stað í stað tveggja áður. Með því sé meðal annars lögð áhersla á bætta þjónustu við þjónustuþega og bætta nýtingu fjármuna.

Snældan heimaþjónusta er staðsett í eldri hluta sjúkrahússins og er aðgengi frá Spítalastíg, inngangur vestast.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta