Fyrsti fundur samstarfsnefndar um aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað samstarfsnefnd um aðgerðir gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Um er að ræða samstarfsnefnd stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins og hélt nefndin sinn fyrsta fund í dag. Auk félags- og húsnæðismálaráðherra eiga þrír ráðherrar fast sæti í nefndinni: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Verkefni samstarfsnefndarinnar er að koma með tillögu að stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda hvað varðar áherslur og aðgerðir gegn brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði og skal nefndin afhenda félags- og húsnæðismálaráðherra tillögu sína innan árs frá Alþingiskosningum. Jafnframt skal nefndin afhenda ráðherra skýrslur, eftir því sem þörf krefur að mati nefndarinnar og ef ráðherra óskar sérstaklega eftir því, um stöðuna hvað varðar brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði.
Nefndin er skipuð á grundvelli laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda sem Alþingi samþykkti í júní síðastliðinn. Breytingarnar á lögunum tóku gildi þann 1. janúar 2025.
Öflugar aðgerðir
„Ríkisstjórnin er að grípa til öflugra aðgerða til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi, mansali og félagslegum undirboðum á vinnumarkaði. Samstarfsnefndin er kjörinn vettvangur fyrir samtal milli stjórnvalda og aðila vinnumarkaðsins um hvernig við náum árangri í þeirri mikilvægu baráttu,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Til viðbótar við þá ráðherra sem að framan eru nefndir er samstarfsnefndin þannig skipuð:
- Stefán Daníel Jónsson, án tilnefningar
- Saga Kjartansdóttir, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
- Kolbrún Halldórsdóttir, tilnefnd af Bandalagi háskólamanna
- Hrannar Már Gunnarsson, tilnefndur af BSRB
- Finnbogi Jónasson, tilnefndur af ríkislögreglustjóra
- Arnar Þór Sævarsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Ragnar Árnason, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
- Bryndís Björk Kristjánsdóttir, tilnefnd af Skattinum
- Anna Lísa Ingólfsdóttir, tilnefnd af Útlendingastofnun Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, tilnefnd af Vinnueftirlitinu
Starfsmaður samstarfsnefndarinnar er Áshildur Linnet, sérfræðingur í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.
Ekki er greidd sérstök þóknun af hálfu ráðuneytisins fyrir setu í samstarfsnefndinni.