Hoppa yfir valmynd
5. maí 2025 Dómsmálaráðuneytið

Nýr upplýsingafulltrúi hjá dómsmálaráðuneytinu

Þórdís Valsdóttir - mynd

Þórdís Valsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins til eins árs. Hún mun hefja störf á næstu vikum.

Þórdís hefur yfir áratugar reynslu úr fjölmiðlum. Nú síðast var hún útvarpsstjóri hjá Sýn og var yfir öllum útvarpsstöðvum félagsins. Áður starfaði hún sem blaðamaður, bæði á Fréttablaðinu og Vísi, var þáttarstjórnandi í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og umsjónarmaður Íslands í dag á Stöð 2.

Hún er með meistaragráðu í lögfræði.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta