Hoppa yfir valmynd
6. maí 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Nýr stjórnarmaður í HMS

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað nýjan fulltrúa í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) til að uppfylla lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Nýr fulltrúi í stjórn verður Sigríður Ósk Bjarnardóttir, doktor í byggingarverkfræði. Hún tekur sæti Rúnars Sigurjónssonar sem verður varamaður. 

Eftir breytingarnar verður stjórnin svo skipuð:

  • Sigurður Tyrfingsson, formaður, án tilnefningar,
  • Jónas Yngvi Ásgrímsson, án tilnefningar,
  • Oddný Árnadóttir, án tilnefningar,
  • Sigríður Ósk Bjarnadóttir, án tilnefningar,
  • Arnar Þór Sævarsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Til vara:

  • Hanna Guðmundsdóttir, án tilnefningar,
  • Rúnar Sigurjónsson, án tilnefningar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta