Hoppa yfir valmynd
21. maí 2025 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsóknir um þrjú embætti skólameistara á Norðurlandi

Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust ellefu umsóknir um embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Framhaldsskólans á Húsavík.

Umsækjendur um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra:

  • Árni Gunnarsson
  • Halla María Þórðardóttir
  • Íris Helma Ómarsdóttir
  • Kristján Bjarni Halldórsson
  • Selma Barðdal Reynisdóttir
  • Vera Sólveig Ólafsdóttir

Umsækjendur um embætti skólameistara Framhaldsskólans á Húsavík:

  • Halldór Jón Gíslason
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir

Umsækjendur um embætti skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri:

  • Benedikt Barðason
  • Daníel Freyr Jónsson
  • Harpa Jörundardóttir

Embættin voru auglýst laus til umsóknar hinn 28. apríl sl. með umsóknarfresti til og með 14. maí. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættin til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum. Skipað verður í embættin frá 1. ágúst næstkomandi.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta